Halló halló!
Þá er allt komið aftur á fullt swing eftir Íslandsferðina góðu. Það var auðvitað frábært að hitta alla familíuna (nema aumingja Önnu og Ragnar sem voru svo óheppin að vera í Californiu - hver vill nú vera þar!) og sérstaklega að hitta nýju krílin, Þórkötlu og Bríeti.
Ég náði nú að gera alveg hellling þrátt fyrir stuttan tíma, hitta hið eina sanna MR gengi í snilldar grillveislu hjá Önnu K. og Greg, fara aðeins út á lífið, luncha með Heiðu og Söru, kíkja í heimsókn til Olgu og Garðars, fara yfir rannsóknargögn með nýrnalæknunum, fara í sund og m.a.s. í gymmið með Söru og alls kyns meira skemmtilegt.
Eftir snjóasama helgi á Íslandi var svo bara gott að koma í vorstemmninguna í Boston. Ég er á gjörgæslunni þennan mánuðinn sem er alveg hreint ótrúlega busy rotation. Sólarhringsvakt 3ja hvern dag, postcall 3ja hvern dag og "swing day" 3ja hvern dag en þá er maður bara í vinnunni 6-1pm. Ég fíla gjörgæsluna alveg rosavel, fullt af áhugaverðum tilfellum og fellow-arnir og sérfræðingarnir miklir snillingar. Það eru fyrirlestrar 1-2 x á dag þannig það er aldeilis haldið að manni lærdómi þessa dagana.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Wednesday, April 08, 2009
1 comments
Hæ hó Ísland!
Nú er loksins farið að vera vor í lofti hér í Boston! Þetta er búið að vera langur og strangur vetur skv. heimamönnum og ekki snjóað eins þungt og mikið í mörg mörg ár. En ei meir... nú eru krókusar farnir að stinga upp kollinum og fuglasöngur farinn að vekja mann upp á morgnanna, þ.e.a.s. um helgar, þegar maður vaknar EKKI fyrir sólarupprás.
Hlakka mikið til að koma heim til Íslands um næstu helgi, þótt ekki verði stoppið langt í þetta sinn. Aðaltilgangur ferðarinnar er að endurnýja vegabréfsáritunina og náði ég að kría út 4ra daga helgarfrí úr vinnunni, það þykir nú nokkuð gott skal ég ykkur segja. Hins vegar tekur vegabréfs-buisnessinn einungis 15 mínútur í sendiráðinu þannig ég hef 97 klukkutíma og 45 mínútur til að hitta vini og ættingja, djamma smá, borða grillmat (já!), fara á Laugarveginn og í sund. Ekki slæmt.
Verð hjá foreldrunum: 552 2631 og ef ég finn gamla gemsann þá verð ég með hann líka: 699 6045.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, March 21, 2009
3
comments
Valentínusardagur
Var að labba heim úr vinnunni í dag og ákvað að taka púlsinn á Valentínusarstemmningunni í Boston. Komst að því að hér eru allir, sérstaklega ef þú fellur undir það að vera verslunarmaður/kona eða bara bissnessmanneskja af hvaða tegund sem er, afar rómantískir og hjartalaga mynstri af ýmsu tagi var flaggað um alla borg.
Hér eru nokkur sýnishorn:
href="https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEjmEGTxevacOT-JpxquoW9wmf_cb9SCqwHTBl1m0XBAHZEi04DqJbZNbntW8aTcn_ZrydlLIxWnQlNUcl8fg0kZOsW24ZPmUFVzTxG9Zg7A3d0rSMzz5zr1UJtpB_9uyQLfNw5vm4PVxA/s1600-h/IMG_0646.jpg">
href="http://2.bp.blogspot.com/_v1wz5cHy5PY/SZZTSmjrJ0I/AAAAAAAAATA/PEoQ1C4jxic/s1600-h/IMG_0644.jpg">
href="https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhFkcWGzq6r5OQIJ7bQ58t403xIvTA48WhtjkguvXa6raqZwRFBe9B01tBKnN25OaogRxpkPDyxA1_yGsoi3ifwMTKwd8mYbflBQDBI7AHhh4dc5MKoJ0g8Q-cvx8Ly8X1XGi7F_mipsg/s1600-h/IMG_0642.jpg">
href="https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEjfmpE3sRfJcvhMu8QYd8YhYTZIwB7uRffY_gg-_YKvDqZHqn4ZC-LGNlJCkhBFFOUye12OB3vi4wKOLQZKuM3m2zrPRt8RT9eTE0p0zYcx2cejiHUfPMY7m5Nzi-lrLhuBXegjKyffeA/s1600-h/IMG_0643.jpg">
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Saturday, February 14, 2009
1 comments
Rúgbrauð með reyktum laxi
Ég er búin að vera að skoða bloggsíður allra vinanna sem búa í Svíþjóð. Ég komst í svo góðan Skandinavískan gír að ég settist niður með tebolla og fékk mér rúgbrauð með reyktum laxi og vorlauki! Það er eins ó-Amerískt og hugsast getur.
Ég er nefnilega post call sem er besti dagur vikunnar. Þótt 24 tíma vaktir geti stundum verið strembnar eru þær alveg þess virði til að maður fái sinn post call day, sérstaklega þegar maður nær að sofa í 5 tíma í einu, eins og gerðist í nótt. Á fimmtudagsmorgnum eru Grand Rounds fyrst og síðan tilfellafundur. Með þessu er borið fram klassískur amerískur morgunmatur: Starbucks kaffi, beyglur með rjómaosti og alls kyns úrval af donuts, kökum og öðru drasl-sætabrauði. Ég bara get ekki skilið hver getur hafið morguninn á donut og bláberja muffins! En beyglan var góð.... :)
Venjulega fer maður heim um 7-leytið (nema á fim) og leggur sig kannski í 2-3 tíma og á svo allan daginn fyrir sig. Alveg yndislegt.
Með tebollann í annari og rúgbrauðið í hinni fór ég svo yfir atburði síðustu daga á mbl og ruv. Það er frábært að sjá að það kom að því. Ný ríkisstjórn, þótt fyrr hefði verið! Hef góða trú á Jóhönnu í sæti forsetisráðherra. Það er samt eitthvað svo skrýtið að vera svona langt í burtu, en þeim mun heitari umræður eiga sér stað í matarboðunum hér vestra og ekki óalgengt að kveikt sé á kastljósinu "í beinni" yfir kvöldmatnum. Mér finnst Boston-búar fylgjast alveg ótrúlega vel með, það líður varla sá dagur að ég sé ekki spurð hvernig staðan sé núna á Íslandi, ég spurð út í ríkisstjórnina eða mér óskað til hamingju með gay forsetisráðherrann!
Jæja, te-ið búið og tími til að fara að nýta post call daginn í eitthvað skemmtilegt :)
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Thursday, January 29, 2009
1 comments
MLK holiday
Í dag er fyrsti mánudagsfrídagur ársins! Frídagur til heiðurs Martin Luther King, Jr. ...og ég er uppi í rúmi með kaffibolla og jólabækurnar á náttborðinu, góður dagur framundan :)
Það eru 10 Federal holidays á ári. Af þeim eru 7 á mánudegi eða föstudegi = 7 langar helgar! Skv. heimasíðu the federal government verður frídagur 4.júlí í ár færður fram til 3.júlí þar sem sá fjórði lendir á laugardegi í ár og menn eiga rétt á launuðum frídegi á sjálfstæðisdeginum, takk fyrir.
Posted by
Ólöf Viktorsdóttir
at
Monday, January 19, 2009
5
comments

